Stebbi röflar
07.05.2008 12:46:54 / stebbi

bara að halda síðunni lifandi

Er ekki að fara aftur að blogga, vill bara halda síðunni lifandi!

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 13:15:03 / stebbi

Kominn á kalda klakann (For good)

Þá er maður loksins mættur. Búinn með erlendu upplifunina sína og kominn aftur í kalda raunveruleikann á klakanum.

Það er búið að vera mjög gaman síðustu 2-3 vikurnar þar sem að verkefnið sem ég var að vinna fór á flug og var mjög gaman að loksins vinna þetta verkefni með öðrum á skrifstofunni og endaði verkefnið bara mjög vel.

Ég er búinn að fá umsögn frá yfirmanninum mínum í UK og sagðist hann bara vera mjög ánægður með vinnuna mína og að hann væri mjög ánægður með hvernig hugarfar ég kom með í þetta og hvernig ég skilaði öllu fljótt og vel af mér. Þetta var bara frábært að fá þessa umsögn og sagði hann mér að ég fengi topp meðmæli frá honum ef að ég vildi nota hann sem meðmælandi (sem ég mun að sjálfsögðu gera).

En núna tekur námið aftur forgang (ásamt atvinnuleit) en núna þarf ég að fara að sökkva mér aftur ofaní masters ritgerðina og reyna að fara að koma henni frá mér (þar sem hún er það eina sem er eftir í náminu mínu).

Ég ætla líka að einbeita mér að dekra við stelpurnar mínar og reyna bæta þeim upp 2ja mánaða fjarveru! Sérstaklega Margréti þar sem að ég gat ekki talað við hana 2 tíma á dag á Skype eins og ég gerði með Sóleyju.

En ég hef þetta stutt og laggott en ef að fólk vill fá frekari sögur eða bara að heyra í manni þá nær það alltaf á mig í síma 897-8822. Ég er oftast laus í kaffibolla eða meira!


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 14:42:23 / stebbi

20 dagar eftir í London

 Þetta er fljótt að líða. Ég er búinn að vera hérna úti í London í meira en 3 mánuði og á bara 20 daga eftir hérna úti. Það er komin mikil tilhlökkun í mann fyrir að koma heim og búa aftur með stelpunum sínum (sem ég er búinn að sakna ótrúlega mikið).

Ég býst við að vinna á fullu í ritgerðinni þegar ég kem heim og reyna að klára hana um jan-feb tímabilið. Eftir það þá er stefnan tekin á að finna framtíðarframan (að vísu á að finna hann fyrr en ekki byrja að vinna fyrr en ég er búinn með ritgerðina). Eftir að maður er kominn með vinnu þá er stefnan tekin á að finna sér íbúð, bíl og húsgögn og verða aftur íbúðareigandi!! Það verða þvílík útgjöld því á næsta árinu!

En það er annars allt ágætt að frétta héðan úr Lundúnaborg. Sóley kom hingað um síðustu helgi og höfðum við það náðugt saman hérna. Við borðuðum rosalega góðann mat og höfðum það gott saman!! Það var svo náðugt að hafa hana hjá mér að ég ætlaði varla að hleypa henni aftur heim en einhver verður að sjá um litlu snúlluna okkar á meðan pabbinn er að vinna í útlöndum!

Talandi um vinnu, þá er komið þvílíkur gangur í markaðsáætlunina þar sem það styttist mjög í kynninguna á henni og því er ég að vinna stanslaust allann daginn við að útfæra hana og laga til það sem búið er að gera! Svo þegar maður er búinn í vinnunni þá fer maður heim, slappar af í 1 klst og fer svo að vinna í ritgerðinni! Það tekur oftast 2-3 tíma á kvöldin og gengur bara svo rétt eins og maður átti von á (hægt og sígandi) en ég er búinn að skrifa uþb 16 blaðsíður af efni sem ætti flest allt að haldast inni og á ég því aðeins 50 bls eftir (að vísu eru það erfiði hlutinn sem að ég á eftir en maður er bara bjartsýnn). Ég ætla að fara í fulla vinnu við að skrifa ritgerðina þegar ég kem á klakann og vonast til að geta staðið við tímaáætlunina mína!

Ég á svo von á pabba og Helgu systur um helgina og á ég von á að það verði rosagaman að hanga með þeim hérna og þá eru bara 2 vikur eftir hérna!!

En ég hef þetta ekki lengra núna en blogga vonandi amk einu sinni aftur héðan frá Lundúnum áður en ég flyt heim. Svo verða allir að vera duglegir að heyra í manni þegar maður flytur aftur heim og endurvekja gömlu tímana þegar ég bjó á klakanum.
Leiter.

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 14:40:02 / stebbi

Bloggletingi

Jæja, það er víst komið að annarri færslu hérna. Ég er búinn að vera nokkuð latur við þetta, hef byrjað á 2-3 færslum en ekki nennt að klára þær þannig úr hefur orðið 3ja vikna bið.

En það er allt gott að frétta frá Lundúnum. Sóley kom í heimsókn hingað til mín fyrir tæpum 2 vikum og var það ótrúlega gaman. Við gerðum mikið úr helginni og náðum að fara á leiksýningu, Arsenal leik, 3svar sinnum út að borða og kíkja í British Museum sem var rosaflott. Við skemmtum okkur konunglega saman en þetta var einmitt fyrsta helgin sem við höfum átt bara tvö saman síðan Margrét fæddist!!

Eftir að hún fór þá fór ég að huga almennilega að ritgerðinni minni og hef nú fengið efni samþykkt af skólanum, er búinn að fá mér ráðgjafa (sem ég hef unnið með áður og er helvíti góður) og er búinn að fá samþykki fyrirtækisins sem ég er að skrifa um!!
Þetta þýðir að ég get farið að skella mér á fullt í ritgerðarsmíð og vonast ég til að geta komist vel af stað hérna úti og klára ritgerðina fyrir áramót (sem er svolítið metnaðargjarnt en mögulegt). Ég þarf bara að vinna í ritgerðinni flest kvöld hérna úti og eyða helgunum í þetta líka!!

En ég ætla ekki að eyða næstu helgi í þetta þar sem að ég er að koma heim í helgarheimsókn og hitta stelpurnar mínar. Ég ætla að vísu að vinna í ritgerðinni á föstudeginum þar sem ég flýg fyrst til Köben þar sem ég mun hitta ráðgjafann og skipuleggja ritgerðina með honum. Þaðan flýg ég til Íslands og eyði helginni með stúlkunum mínum og svo kem ég aftur til London á sunnudeginum. Ágætisferð vonandi og eftir hana get ég farið á fullt í skrif (ég er búinn með mest alla heimildarleit og búinn að setja upp beinagrind fyrir ritgerðina).

Ég er svo líka búinn að vera upptekinn í vinnunni en verkefnin mín eru núna komin á fullt og ég er að vinna í markaðsplaninu allann daginn núna!! Það hjálpar við að láta daginn líða hratt og það styttist óðfluga í að maður fari að huga að flutningi heim á klakann!! Það eru ekki nema 40 dagar í það og þá verður maður að fara að plana hvað maður vill gera þegar maður verður stór (þ.e. þegar ég klára ritgerðina og útskrifast). Það er komin tilhlökkun í mann og vona ég að lesendur verði ánægðir með að fá mann á klakann líka!!

Hef þetta ekki lengra en ég hitti ykkur kannski um helgina.

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 12:14:28 / stebbi

Heimsókn til klakans

Þá er það staðfest! Ég kem til Íslands á föstudaginn og fer aftur til London á sunnudaginn. Ég ætla ekki að gera neitt mikið af mér. Fyrst og fremst að knúsa stelpurnar mínar og taka því rólega með þeim!! Ég rétt missi af matarboði hjá Óla en það er ekki hægt að breyta fluginu til að ná því þannig að það verður bara að hafa það!!

En annars er allt gott að frétta héðan. Ég fór á Arsenal leik um helgina og var það alger snilld!! Leikurinn fór að vísu 1-1 (ekki úrslitin sem ég var að vonast eftir) en stemmningin var ótrúleg og ekkert smá gaman á leiknum. Eftir leikinn var farið að fá sér nokkra öllara en ég gafst fljótt upp og fór bara heim að slappa af! Ég er aftur á móti búinn að redda mér tveimur miðum á næsta heimaleik Arsenal (sem er á móti Sheffield Wednesday) og vonast ég eftir betri úrslitum þá!! Ég verð bara að ná amk einum sigurleik. Ég vona að nærvera lukkudýrsins míns (Sóleyjar sem að kemur út til mín og kemur með mér á leikinn) eigi eftir að hjálpa liðinu mínu að komast á sigurbrautina!

Annars er ekki mikið að frétta. Ég er oftast bara nokkuð rólegur á kvöldin, les aðeins fyrir ritgerðina eða horfi á sjónvarpið, og tek því bara nokkuð rólega. Ég er bara ekki lengur djammdýrið sem ég var og hef ekki mikinn áhuga á að fara á mörg "Solo" fyllerí hérna! Ég er mikið meira fyrir heimaveru með góðum vinum og áfengi á viðráðanlegu verði!!

Ég heyri vonandi í ykkur þegar ég kem til landsins og ef ekki, þá getið þið alltaf hringt á mig á Skype eða MSN

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 15:23:34 / stebbi

Einn í London

Þá eru stelpurnar mínar farnar heim til Íslands. Sóley er byrjuð að læra sagnfræði í HÍ og Margrét Nótt er hjá ömmu sinni á daginn á meðan mamma hennar er í skólanum. Þetta þýðir auðvitað að ég er einn eftir hérna úti í London og verð þar einn í 2,5 mánuði. Ég verð bara að reyna að venjast því að vera einn hérna og gera það besta úr tímanum hérna. Ég er m.a. byrjaður á masters ritgerðinni minn (var að fá leiðbeinanda í gær og er byrjaður á heimildasöfnun og fer að byrja að skrifa á næstu vikum), ætla að lesa mikið af bókum (m.a. Alfræðibókina um Vín sem Sóley mín gaf mér í afmælisgjöf) og vera duglegur að fara í ræktina!! Svo er auðvitað alltaf meira og meira að gera í vinnunni og það hjálpar við að láta daginn líða.

Framundan er líka tímabilið í ensku deildinni og ætla ég að fylgjast með eins mörgum leikjum og mögulegt er til að komast almennilega inní stemmninguna í bretlandi. Ég er að fara á leik Arsenal og Middelsborough á laugardaginn og hlakkar mig mikið til!!!!! Eftir að við styrktum liðið í síðustu viku þá er ég með miklar væntingar til tímabilsins og spái okkkur í topp 2 í deildinni í vetur (eigum alltaf að vera nr. 1 en ég er ekki alveg 100% að við náum því í ár).

Svo ætla ég bara að reyna að skjótast heim af og til og líka fá hana Sóleyju út í heimsókn til mín og ætlum við að reyna að njóta London sem par og fara fínt út að borða og líka kíkja á leikrit eða eitthvað svoleiðis (eitthvað sem við gátum ekki gert með Margrétina okkar hérna). Þannig að ég lít bara á þetta sem skemmtilega lífsreynslu og ætla að gera sem best úr þessu. En að sjálfsögðu er öllum velkomið að kíkja í heimsókn eða bjalla á mann til að stytta manni stundirnar!

 

 

Hef þetta ekki lengra núna en blogga aðeins oftar núna þar sem ég hef kvöldin svo til laus öll kvöld núna!!

P.s. Sóley var talin vera með of slæma sjón til að fara í Laseraðgerðina en vilja meina að það er til önnur aðgerð sem hún geti mögulega farið í næsta ár.


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 11:00:10 / stebbi

Old man walking

Þá er maður orðinn árinu eldri og vonandi vitrari. Ég átti 27 ára afmæli á laugardaginn og hélt uppá það með Sóleyju, Margréti Nótt og mömmu og pabba sem voru hérna í heimsókn. Það var rosalega gaman að fá þau í heimsókn og sýna þeim hvernig við búum hér og að fara með þeim í bæinn og fá okkur gott að borða og drekka.

Ég fékk mikið af flottum gjöfum og við fórum flott út að borða og ég var mjög ánægður með afmælisdaginn!

Annars er það að frétta af okkur að Margrét fékk nýja kerru (í boði ömmu og afa) sem einfaldar líf okkar mikið (þar sem gamla kerran var alveg að hrynja í sundur). Við ætlum  því að vera duglegri að fara út að labba með hana og skoða betur í kringum okkur þessa 10 daga þar til stelpurnar fara heim.

Við pöntuðum svo tíma í dag fyrir Sóleyju að fara í tjékk nr. 2 fyrir að fara í Laseraðgerð og ef að það gengur eftir þá fer hún í aðgerð 7. september og vonum við að allt gangi vel og að hún verði með 100% sjón eftir aðgerðina (þó að 90% sé stór árangur líka og við sættum okkur vel við það).

En núna gengur lífið útá vinnu og að njóta tímans með stelpunum mínum hérna úti þessa fáu daga sem ég hef þær hjá mér. Við ætlum að leyfa okkur að eyða kannski smá pening í að fara út að borða og svona sem við höfum ekki verið að leyfa okkur til þessa. Það er nefnilega svo dýrt að fara út að borða á íslandi að við gerum það varla í bráð ef að við gerum það ekki hérna úti. Svo verður kannski verslað smá þar sem hlutir eru ódýrari hérna en heima. En annars verðum við auðvitað að passa uppá peninginn okkar þar sem við erum auðvitað bláfátækir námsmenn (bæði tvö nú þegar Sóley byrjar í skólanum eftir 2 vikur)

Svo kem ég til Íslands núna á miðvikudaginn en ég lendi um 23.10, fer á fund kl. 09.00 á fimmtudaginum og fer svo aftur út kl 16.10 á fimmtudeginum þannig að ég er ekkert viss um að ég geti hitt á neinn, en við sjáum nú til með það. Ef að einhver hefur einhverjar hugmyndir þá er ég opinn fyrir uppástungum.

En ég hef þetta ekki lengra en verð mögulega í bandi á meðan ég er á klakanum.


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 09:15:59 / stebbi

London færsla nr. 3

Allt gott að frétta frá London.

Veðrið hefur ekki verið neitt æðislegt síðustu 2 vikurnar (bara í kringum 20-25 gráður) en það hefur ekki stoppað okkur frá því að gera margt skemmtilegt.

Við fórum fyrir rúmri viku til Rouen í Frakklandi að heimsækja Óla mág og tengdafjölskylduna. Við tókum Eurostar lestina til Parísar og tókum lest þaðan til Rouen. Það var hressandi að prófa annan ferðarmáta og hafði Margrét Nótt mikið gaman af lestinni!!

Rouen er rosalega flott borg og við gerðum varla annað en að labba um allann miðbæinn og skoða flottar byggingar og njóta góða veðursins. Við fórum svo á smá djamm á laugardagskvöldinu og var það bara nokkuð skemmtilegt en Sóley fór svolítið illa úr því þar sem hún varð þvílíkt þunn og gat ekkert gert á sunnudeginum og varð að fara heim þegar við fórum út að borða því hún treysti sér ekki í þetta! Hrikalegt að verða svona þunnur!! En eftir góða dvöl í Frakklandi þá fórum við aftur til London þar sem að vinnan kallaði (ég fékk samt 2ja daga frí til að fara í þessa ferð)

Við erum líka búin að skoða okkur mikið um í London og erum búin að labba um næstum því allt svæði 1 í London (sem er ágætlega stórt svæði). T.d. löbbuðum við í 6,5 klst á laugardaginn þegar við fórum að skoða Portobello Road útimarkaðinn og fórum svo löngu leiðina heim! En það var rosalega gaman og gott að taka svona góð löbb til að ná af sér breska matnum (sem er betri en við áttum von á).

En næst á dagskrá er að við eigum von á öðrum gestunum okkar hingað út til London (Fyrstu gestirnir voru  ekki planaðir en Hugrún vinkona hennar Sóleyjar og systir hennar komu til okkar fyrir 2 vikum þegar þær misstu af fluginu sínu í Barcelona og næsta lausa flug til Íslands var í London 2 dögum seinna. Því komu þær til okkar með enga gistingu og fengu að sofa á gólfinu hjá okkur!)  Foreldrar mínir eru að koma á miðvikudaginn og ætla að stoppa hérna í 3,5 daga og halda uppá afmælið mitt með mér (sem er á laugardaginn). Það verður án efa rosalega skemmtilegt og við fáum vonandi gott veður meðan þau eru hérna.

Svo er búið að plana heimkomu stelpnanna minna. Þær fara aftur til klakans (í minni fylgd) 1. september og ég fer svo aftur til London 3. september einn og yfirgefinn. Þá taka við 2,5 mánuðir án stelpnanna minna en ég mun reyna að bæta úr því með því að skjótast heim á 2ja vikna fresti eða svo!!

Þetta er orðið rosalega langt hjá mér svo að ég hef þetta ekki lengra en ég læt ykkur vita áður en ég kem aftur til klakans (einhvern tímann í næstu viku) svo við getum kannski fengið okkur kollu saman.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 13:53:13 / stebbi

London færsla nr.2

Þá er að koma að helgi nr. 2 hérna úti og erum við ennþá rosa ánægð hérna. Veðrið er ennþá rosalega gott (mögulega of gott), fullt að skoða og gera og menningin og stemmningin bara skemmtileg. Við erum byrjuð að leita að hverfispöbbinum okkar en það felur í sér að við erum búin að fara á fullt af pöbbum í hverfinu og prófa þá!! Við erum ennþá að skoða og vonandi finnum við einn rosagóðann sem sýnir alla leikina og serverar bjórinn á ágætis prís.

Við erum líka búin að vera dugleg að fara mikið út og skoða London og er búin að labba svo til allt hverfið í kringum okkur (allar hliðargötur og allt) og líst okkur vel á þetta hverfi.

Um helgina verður farið í smá ferð útí úthverfi London og hitta fjölskyldu eins samstarfsmanns míns og leyfa Margréti að leika við dóttur þeirra (sem er 2 mánuðum yngri en hún). Eftir það reynum við bara að slappa af og ég ætla að njóta þess að fá að leika við stelpurnar og kannski fara með Margréti í leikgarðinn.

Svo er ég að reyna að redda mér miðum á Arsenal leiki og er það alger pain in the arse. Það er uppselt á nær alla leiki og svartamarkaðsprísinn er uþb 20-30 þús. Fyrir miðann!! Ég sé fram á að kannski fara á einn leik en ég held að yfirdrátturinn þoli varla meira en það! Þetta er mjög leiðinlegt þar sem eitt af því sem mig hlakkaði mest til var að fara á völlinn og kíkja á leiki! En þetta hlýtur að reddast einhvern veginn og ef allt klikkar þá kaupi ég bara einn ofrukkaðann miða til að geta sagts hafa farið á leik.

En núna er helgin alveg að koma og ég heyri bara í ykkur seinna því að pöbbinn kallar!

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 10:13:42 / stebbi

Loksins nennti ég að blogga

Þá er maður fluttur til London og byrjaður að vinna hjá Icelandair. Flutningarnir gengu bara nokkuð vel og við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir íbúðinni okkar (sem er í raun bara lítið herbergi með litlu klósetti og skáp sem búið er að breyta í eldhús). En það eru kostir við íbúðina. Hún er í 4ja stjörnu hóteli sem þýðir að við fáum fáranlega góða þjónustu (herbergisþerna kemur og þrífur 3svar í viku), við erum með loftkælingu (sem bjargar lífinu okkar núna í þessum hita) og svo skemmir ekki að ég er ekki nema 5 mínútur að labba í vinnuna (sem er þvílíkur plús hérna, sumir sem eru að vinna með mér eru uþb 2 tíma í lestinni hvora leið í og úr vinnunni). Ég er því sæmilega ánægður með íbúðina og hún verður alveg rétt stærð fyrir mig þegar stelpurnar fara heim (en núna er hún svolítið þröng fyrir okkur þrjú). Ef að þið viljið sjá myndir af íbúðinni þá kíkið hérna:

Hérna er svo þvílíkur hiti og var hitametið í Bretlandi brotið á þriðjudaginn en þá náði hitinn að verða 36,8°C og er ekkert gaman að vinna í svoleiðis hita. Maður drekkur 2 lítra af vatni í vinnunni á dag, klæðist stuttermaskyrtum og reynir að standa fyrir framan loftkælinguna eins mikið og maður getur

En vinnan er flott, fólkið er hresst og skemmtilegt og mér líst vel á verkefnin sem ég á að vinna í hérna. Ég er að vísu ekki að gera mikið fyrstu vikuna, bara að reyna að læra á forritin hérna og lesa mig til um Icelandair og starfshætti þeirra! Ég er smá pirrandi þar sem ég er sífellt að spyrja spurninga en maður verður bara að gera það til að læra og geta gert eitthvað af viti meðan maður vinnur hérna.

Svo er London auðvitað frábær borg. Það er mikið að sjá og gera hérna og það eru indverskir veitingastaðir á 20 metra fresti (sem er algert brill fyrir okkur en við erum Curryholics). Við erum búin að vera nokkuð dugleg að skoða allt í kringum okkur þegar ég er búinn í vinnunni og erum búin að labba að meðaltali 2 klukkutíma eftir vinnuna hjá mér að skoða í kringum okkur. Við erum í mjög skemmtilegu hverfi í miðri London og erum ekki nema 10 mín að labba niður á Oxford Street og 20 mín að labba í útimarkaðina hjá Camden Town.

En þar sem ég er í vinnunni þá hef ég þetta ekki lengra en ég læt vita um leið og eitthvað skemmtilegt gerist hérna.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 18:15:53 / stebbi

London á morgun

Bara láta fólk vita af því að ég er búinn að vera 2 vikur á klakanum og nú er fríið búið. Ég fer með stelpurnar mínar á morgun til London og byrja að vinna hjá Icelandair á mánudaginn!!

Ég læt heyra betur í mér þegar við erum búin að koma okkur fyrir í London.

Kv. Stebbi


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 19:18:26 / stebbi

Framtíðin ráðin

Jæja, þá er það loksins komið á hreint. Við erum að flytja frá köben eftir 6 daga og flytjum til London í miðjum júlí. Það varð úr starfinu og það hljómar bara rosa flott!!

Ég hlakka massívt til að fara til London og prófa að vinna í alvöru vinnu með þessa menntun og sjá hvort að hún gagnist manni eitthvað!!

En það er rosalega gott að fá þessi mál á hreint en þar sem við fengum þetta staðfest svo seint þá erum við að stressa okkur massíft yfir pakkningum og flutningi núna þar sem við þurfum að koma hafurtaskinu okkar í skip á þriðjudaginn og við þurfum að pakka og pakka alla daga til að ná þessu örugglega fyrir þriðjudaginn.

 

Við náum því miður ekki að gera alla hlutina sem við vildum gera hérna en það verður bara að hafa það og við fáum bara að skemmta okkur smá í London í staðinn ;)

 

Ég er núna bara heima með Margréti meðan Sóley er að djamma aðeins með Írisi frænku sinni og Óla mági (en hann kom hingað til að verja masters ritgerðina sína og er því búinn með masterinn sinn, Til hamingju með það).

 

Ég er rosalega jákvæður fyrir þessum næstu mánuðum og ég held að þetta verði bara rosaskemmtileg lífsreynsla að prófa að búa og vinna í London og ég hlakka bara til að flytja út (sem verður í kringum 15. júlí).

 

En framundan eru þrjár vikur á Íslandi og þær verða notaðar í smá afslappelsi þar sem ég fer svo bara að vinna og þá er langt í næsta frí!!

Læt heyra betur í mér á Íslandi og við sjáumst hress og kát þar næstu helgi

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 08:13:08 / stebbi

29 Hours

Þá er komið á hreint að ég kem aftur til klakans á þriðjudaginn 20. júní klukkan 11.20, fer á fund með ákveðnu fyrirtæki klukkan 15.30 í atvinnuviðtal og svo nær maður að hitta vini og vandamenn um kvöldið. Daginn eftir þarf ég að fara á 2-3 staði (s.s. LÍN, bankann og svoleiðis skemmtilegheit) og svo fer ég aftur til Kongens Köbenhavn klukkan 17.10.

Þetta verða flottir 29 tímar og vonandi nær maður að hitta á þá eðalvini sem voru ekki til staðar í síðustu ferð!! Við reynum að plana eitthvað á þriðjudagskvöldinu!!

Við verðum í bandi


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 10:12:59 / stebbi

Önnin er búin!!! :D:D:D:D:D

Jæja, þá er önnin loks búin!! Ég kláraði munnlega vörn á verkefninu okkar í gær og það gekk bara mjög vel. Það gekk meira að segja það vel að við fengum hæsta mögulega skor í danska kerfinu sem er 13 fyrir verkefnið og kennararnir gátu ekki hætt að hæla okkur!! Þetta kom svolítið á óvart þar sem hópvinnan hefur ekki gengið alveg áfallalaust en við vissum að við værum með gott verkefni og því var þetta kærkomið. Hinir hóparnir sem ég hef talað við hafa verið að fá einkunnir á bilinu 7-9 þannig að þetta varð enn flottara við að heyra það.

Að sjálfsögðu var haldið uppá þessu góðu einkunn og fékk hópurinn sér bjór saman eftir verkefnið og allir voru aftur orðnir vinir!! Ég stakk þó fljótt af þar sem ég var búinn að plana strandarferð með stelpunum mínum og var Sóley búin að smyrja flott nesti og ég keypti nokkra kalda öl og við kíktum á Amager Strandpark sem er uþb 20 mínútna labb héðan frá!! Veðrið var ótrúlega gott (26 gráður, heiðskýrt og létt gola) og sjórinn var bara dejlig. Við vorum þar í uþb 2 klukkustundir og Margrét skemmti sér bara rosavel í sandinum með nýju fötuna sína og skófluna (þó að hún hafi ekki alveg vitað hvað hún ætti að gera við það).

Eftir að við fórum heim þá var farið í snögga sturtu og út á borða á indverskum stað sem er rétt við hliðina á okkur og við fengum okkur frábærann indverskan mat (svolítið sterkann þó) og fórum svo bara heim til að chilla og ná okkur eftir brunann sem við fengum á ströndinni (ekkert rosalegur bruni, bara smá).

Í dag er ennþá heitar og við erum að reyna að mana okkur uppí að fara aftur út í 30 gráðurnar og kannski fara í Kanal túr um Kaupmannahöfn eða kíkja í dýragarðinnn með Margréti!! Það verður bara rosagaman að njóta lífsins og fara út í túristapakkann hérna!! Enda er ég núna búinn með skólann hérna úti og við sjáum framá að flytja héðan eftir 1-2 mánuði!

Svo varðandi væntanalega heimför mína í viðtalið. Því var frestað um nokkra daga þar sem að maðurinn sem ég er að reyna að hitta á er mjög upptekinn og því fer ég örugglega ekki heim fyrr en á föstudaginn eða mánudaginn. Það kemur allt í ljós í dag eða morgun.

En núna ætla ég út í sólina og kannski fá mér öl (þar sem ég er nú í fríi) og njóta lífsins.
Við heyrumst.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 19:20:11 / stebbi

Stutt og laggott

Litla dúllan mín, hún Margrét Nótt á afmæli í dag og er orðin eins árs!!!!

Ég er svo stoltur af litlu prinsessunni minni og afmælisdagurinn hennar var frábær, 26 gráður, sól og yndislegheit en próf daginn eftir og ég þurfti að læra smá!!

Klára önnina á morgun og hlakka ekkert smá til! Verð í bandi seinna, bæjó


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7